GRASKER
- Afhýðið grasker og skerið í fallegar lengjur.
- Skerið chilli í fínar sneiðar.
- Setjið grasker á bakka og dreifið ólífu olíu, chilli og timían yfir.
- Blandið öllu vel saman. Setjið í ofn á 130°C í 30 mínútur. Kælið.
CHIMMICHURRI
- Hitið smjör rólega á pönnu þangað til komin er karamelluáferð á það en passið að það brenni ekki.
- Fínsaxið skalottlauk og steikið í smjörinu þar til hann er orðinn alveg glær. Látið bíða í 5 mínútur.
- Saxið kóríander fínt og setjið útí laukinn, blandið vel.
- Kreistið lime og bætið eplaediki og ólífuolíu úti. Smakkið til með salti og pipar.
MAÍSSALSA
- Sjóðið maísstöngulinn í 10 mín í potti og kælið þvínæst.
- Skrælið baunirnar af, fínsaxið rauðlauk og kóríander og skerið chilli í þunnar sneiðar.
- Kreistið lime yfir og smakkið til með salti og pipar.
SAMSETNING
Setjið graskerið á spjót og dreifið chimmichurri og maíssalsa yfir.
VÍNIN MEÐ
Rétturinn hentar vel með ósætu rósavíni.