- Svitið laukinn á pönnu í lítilli olíu, bætið ristuðu og möluðu fræjunum útí ásamt turmerik og svörtum pipar.
- Setjið kókosmjólkina út í ásamt tómatpúrre, sítrónugrasi, engifer, hvítlauk og lime (byrjið á að rífa börkinn með rifjárni og kreistið safann úr).
- Setjið fínsaxað chilli útí (varið ykkur á styrkleikanum, betra að byrja á því að setja minna og auka frekar við ef hann reynist mildur).
- Setjið smá vatn, seljurót og gulrætur útí.
- Látið malla þar til að grænmetið er orðið mjúkt.
- Bætið þá blómkáli og fersku kóríander útí og látið malla í 5 mínútur í viðbót.
- Mjög gott að bera fram með hýðishrísgrjónum og einföldu salati.
VÍNIN MEÐ
Hér þarf að velja vel til að kryddin í réttinum trufli ekki vínin. Gott er að haka við "austurlenskt" í vöruleitinni, en þar hafa vínráðgjafar valið vín sem henta vel með krydduðum mat.