TÓMATSÓSA
- Svitið laukinn og hvítlaukinn í ólífuolíunni í nokkrar mínútur.
- Bætið tómötunum, bæði ferskum og í dós, út í pottinn ásamt chili og basilíku.
- Látið sjóða í 30- 40 mínútur.
- Kryddið til með salti og pipar.
EGGALDIN
- Penslið eggaldin með ólífuolíu og bakið heil á smjörpappír í forhituðum ofni, 180°C, í 40 til 50 mínútur.
- Kælið. Skerið eggaldin í tvennt eftir endilöngu, skafið kjötið úr og saxið það smátt.
- Skiljið örlítið af kjötinu eftir í hýðinu svo að það haldist heillegt og geymið.
- Hellið ólífuolíu í pott og steikið hvítlaukinn, blaðlaukinn og sveppina í nokkrar mínútur.
- Bætið síðan eggaldinkjötinu, kryddinu og tómötunum saman við og látið krauma við vægan hita í 20-30 mínútur.
- Hrærið reglulega í og gætið þess að ekki brenni við.
- Takið pottinn af hitanum og bætið helmingnum af parmesan-ostinum saman við.
- Fyllið eggaldinhýðið með blöndunni, stráið restinni af ostinum yfir og bakið í nokkrar mínútur í ofni.
- Berið fram með tómatsósunni.
VÍNIN MEÐ
Í vöruleitinni er að finna ýmsar hugmyndir að vínum sem henta með grænmetisréttum , en hægt er að sía leitina eftir þínum þörfum.