- Blandið saman hakki, eggjum, brauðraspi, sinnepi, tómatsósu, dilli og Worcestershire sósu í skál.
- Kryddið með salti og pipar. Mótið í fjóra jafn stóra hamborgara.
- Grillið á miðlungsheitu grilli í 6-8 mínútur á hvorri hlið.
- Grillið líka beikonsneiðar og kirsuberjatómata á sama tíma.
- Þegar hamborgararnir eru að verða klárir setjið þá ostsneiðarnar ofan á og leyfið ostinum að bráðna.
SÆT SINNEPSÓSA
Blandið saman og notið sem sósu á hamborgarana.
VÍNIN MEÐ
Með lambaborgaranum er tilvalið að velja létt, mjúk rauðvín eins og Malbec frá Argentínu, létt Kaliforníu-vín eða mjúka Portúgali.