- Snyrtið lambakórónuna og skerið í fituna.
- Kryddið kjötið með salti og pipar.
- Blandið saman sinnepi og hunangi. Penslið kjötið með gljáanum.
- Grillið kjötið á miðlungsheitu grilli með fituhliðina niður í 6-8 mínútur, en passið vel að það brenni ekki.
- Færið kjötið reglulega því fitan brennur auðveldlega og munið að pensla það.
- Snúið svo kjötinu við og grillið áfram í 6 mínútur.
- Leyfið kjötinu að hvíla vel áður en það er skorið.
- Skerið kjötið á milli beinanna og dýfið því í döðlusultuna, jógúrtsósuna, hnetumulninginn og njótið!
DÖÐLUSULTA
Steikið laukana í potti upp úr olíu í smá stund. Bætið döðlum og sykri út í ásamt vatninu. Sjóðið við vægan hita þar til döðlurnar eru orðnar að mauki og maukið svo vel þar til þetta verður eins og sulta. Kælið.
JÓGÚRTSÓSA
Blandið öllu saman í skál.
HNETUMULNINGUR
Ristið hneturnar á pönnu við vægan hita. Setjið svo í matvinnsluvél ásamt kryddinu og maukið.
VÍNIN MEÐ
Sætan og kryddunin í uppskriftinni kallar á mjúk og ávaxtarík rauðvín frá suður-Frakklandi, suður Ítalíu eða Ástralíu