Rafbrúnn. Smásætur, mjúkur, lítil beiskja. Ristað malt, karamella, lakkrískonfek Sjá meira
Rafbrúnn. Smásætur, mjúkur, lítil beiskja. Ristað malt, karamella, lakkrískonfekt.
Brune
Hér má finna brúnöl sem hefur verið gerjað með belgískum gerafbrigðum sem gefur yfirleitt af sér kryddaða og ávaxtaríka tóna. Ásamt því eru humlaeinkenni lítil og áhersla lögð á maltkarakter.
Belgískt öl
Fjölbreyttur flokkur öls sem geta verið allt frá ljósum, léttum og ávaxtaríkum bjór yfir í dimmbrúnan, þéttan og kröftugan. Belgísk öl einkennast fyrst og fremst af gerafbrigði sem notast er við sem gefur af sér mjög sætkennda ávaxtaríka lykt og bragð. Þó svo að lyktin virki sem sæt þá eru þessi öl það alls ekki alltaf. Í sterkustu útgáfunum af þessum bjórum notast bruggarar við sykur til þess að keyra upp víndandastyrkinn í ölinu. Þessi öl innihalda yfirleitt nokkuð litla beiskju og hafa lítinn ilm eða bragð af humlum.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 10-13°C Sjá minna