Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Útgefið efni

Útgáfuefni

Lamb og vín (PDF)

Í þessum bæklingi finnur þú góðar ábendingar um vín með lambakjöti sem Gissur Kristinsson, vínráðgjafi setti saman. Einnig bendum við á að vöruleitinni á vinbudin.is er góð leið til að velja vín sem passar með matnum. Starfsfólk Vínbúðanna er sömuleiðis ávalt reiðubúið að veita þér þjónustu og ráðgjöf. Uppskriftir í bæklingi eru frá Grillmarkaðnum.

Suður Afríka (PDF)

Flottur bæklingur um vínin frá Suður-Afríku, vínræktarsögu landsins og helstu áherslur. Einnig er að finna girnilegar uppskriftir að sumarlegum grillréttum frá veitingahúsinu Nauthól.

Fleiri kokteilar og bollur

Í þessum bæklingi má finna úrval girnilegra kokteila, jafn áfengra sem óáfengra.

Ítalía

Í þessum bæklingi eftir Pál Sigurðsson vínráðgjafa finnur þú fróðlegar upplýsingar um vín og helstu vínræktarhéruð Ítalíu. Auk þess hefur Leifur Kolbeinsson tekið saman sex girnilegar uppskriftir að réttum sem eru undir ítölskum áhrifum sem birtast í bæklingnum.

Bjór og matur

Spennandi bæklingur um bjór og mat. Vínráðgjafar vínbúðanna fræða okkur um hvaða bjór er best að velja með ýmiskonar mat. Einnig eru í bæklingnum girnilegar uppskriftir frá veitingastaðnum Munnhörpunni sem tilvalið er að prófa.

Eftirréttir

Girnilegur bæklingur um eftirrétti og vínin með. Páll Sigurðsson vínráðgjafi fræðir okkur um hvaða vín er best að velja með eftirréttunum. Einnig eru í bæklingnum uppskriftir af ómótstæðilegum eftirréttum frá Hafliða í Mosfellsbakaríi.

Smáréttaveisla

Glæsilegur bæklingur um smárétti og upplýsingar um hvernig velja á vínið með. Uppskriftir af fimm girnilegum smáréttum.

Villibráð og hátíðarmatur

Í þessum bæklingi eru settar fram nokkrar hugmyndir að vínum sem gætu hentað með villibráð og öðrum hátíðarmat. Girnilegar villibráða-uppskriftir fylgja.

Ostaveisla

Í þessum bæklingi er leitast við að aðstoða þig við að velja vín með ostum. Einnig uppskriftir af góðum osta-réttum ásamt ómissandi osta-vín töflu þar sem bornir eru saman nokkrir ólíkir ostar og hvernig þeir henta með ákveðnum þrúgutegundum.

Kokteilar og bollur

Úrval af frábærum kokteil-uppskriftum. Vinsælasti bæklingurinn í Vínbúðinni!