Vínbúðirnar standa nú fyrir auglýsingaherferð sem byggir á því að hvetja foreldra til að kaupa ekki áfengi fyrir unglinginn. Herferðin er á léttu nótunum, þótt undirtónninn sé alvarlegur. Aðalhlutverkin eru í höndum Hilmis Snæs Guðnasonar og Atla Fjalarssonar.
Þegar þú kaupir áfengi fyrir ungling minnkarðu ekki hættuna á að hann fari sér að voða.
Þú eykur hana.
- Umhyggja, aðhald og eftirlit foreldra draga úr líkum á áhættuhegðun unglinga.
- Foreldrar gegna lykilhlutverki við að móta heilbrigðan lífsstíl barna með góðu fordæmi og hispurslausum samræðum.
- Með því að kaupa áfengi fyrir unglinginn viðurkenna foreldrar að það sé eðlilegur hluti af lífi ungs fólks að drekka áfengi.
- Foreldrar þurfa að standa saman og senda skýr skilaboð um að áfengi sé ekki leyfilegt fyrir unglinga.
- Því fyrr sem börn byrja að drekka, því líklegra er að þau drekki of mikið og hætta eykst á að þau prófi önnur vímuefni.
- Áfengisneysla á mótunartíma heilans getur skaðað ákveðnar stöðvar hans fyrir lífstíð.
Skoða auglýsingarnar: