Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Úrval uppskrifta

06.08.2024

Sumarið er tilvalið til að prófa nýjar og spennandi uppskriftir í mat og drykk, sama hvernig viðrar. Á uppskriftavef Vínbúðarinnar má nálgast fjöldan allan af uppskriftum fyrir ýmis konar tækifæri. Þegar sólin lætur sjá sig er tilvalið að kíkja á grilluppskriftir eða spennandi og fersk salöt, en í rigningarveðri er notalegt að skella í haustlega pottrétti eða annan kósímat og jafnvel para með góðu víni.

Þá er líka gaman að skoða kokteilsíðuna sem státar af alls konar uppskriftum, allt frá frísklegum sumarkokteilum til heitra drykkja sem notalegt er að gæða sér á við kertaljós á köldum kvöldum.  Njótið vel!