Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Jólabjórinn kemur

14.10.2024

Sala jólabjórs og annarra jólavara  hefst í Vínbúðunum fimmtudaginn 31. október. Áhugi fyrir jólabjórnum er alla jafna mikill og viðskiptavinir áhugasamir um vöruúrvalið, en í ár hafa borist um 110 umsóknir til sölu á jólavörum sem er nokkuð sambærilegt við undanfarin ár. Eins og áður eru klassískir lager jólabjórar frá stærri framleiðendunum mest áberandi í bland við tilraunakenndari vörur, þar sem verið er að leika sér aðeins meira með krydd og bragð. Einnig er gert ráð fyrir að aðrar hefðbundnar jólavörur verði í boði.

Í  Vefbúðinni má á hverjum tíma sjá lista yfir þær tegundir sem áætlað er að verði í sölu, en listinn er síbreytilegur fram að sölubyrjun þar sem skráning vara er enn í fullum gangi.  Dreifing tegunda er misjöfn eftir Vínbúðum, en þegar sala hefst er hægt að sjá hvar viðkomandi vara fæst með því að smella á heiti vörunnar. Einnig verður hægt að nálgast flestar jólavörurnar í Vefbúðinni og fá sent í næstu Vínbúð, án sendingarkostnaðar. Úrvalið er því það sama um allt land.