Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fyrirmyndarstofnun 2024

11.03.2025

Niðurstaða í Stofnun ársins 2024 var kynnt nýverið og hlaut Vínbúðin titilinn fyrirmyndarstofnun ársins 2024. Titilinn hljóta fyrirtæki og stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsmanna. Stærðarflokkarnir eru þrír og er Vínbúðin í flokki þeirra sem eru með 90 eða fleiri starfsmenn.

Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur stofnana til að huga að mannauðsmálum og auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana.

Á vef Sameykis er hægt að kynna sér niðurstöðurnar nánar.