Ljósgullinn, skýjaður. Ósætur, léttur, meðalbeiskja. Korn, sítrus, bar Sjá meira
Ljósgullinn, skýjaður. Ósætur, léttur, meðalbeiskja. Korn, sítrus, barr.
Session IPA
Session IPA er India Pale Ale sem hefur lægri vínandastyrk en IPA og DIPA. Hann hefur sömu einkenni og báðir, suðræna ávexti og grösuga tóna frá humlunum en getur stundum virkað ennþá beiskari þar sem hann hefur ekki sama maltþéttleika og IPA og DIPA.
IPA
Þessum flokki tilheyra allir þeir bjórar sem teljast til IPA, hvort sem þeir koma frá Bandaríkjunum, Bretlandseyjum eða annars staðar frá. IPA eða India Pale Ale er öl sem á rætur sínar að rekja til Bretlands og einkennist í dag í flestum tilfellum af mjög áberandi bragði af þeim humlum sem notaðir eru í framleiðslunni. Bragðeinkenni geta t.d. verið sítrus, trjákvoða, og suðrænir ávextir og innihalda yfirleitt nokkuð mikla beiskju. Vínandastyrkur getur verið frá 4,5% til 10%.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-10°C Sjá minna