SALSA VERDE
Blandið öllu saman í matvinnsluvél og gerið miðlungsfínt mauk úr blöndunni. Smakkið til með salti og pipar.
RISOTTO
- Svitið skalotlauk og hvítlauk í ólífuolíu við miðlungshita í góðum, víðum potti.
- Bætið fljótlega við Arborio hrísgrjónum og blandið vel saman.
- Steikið í 1-2 mínútur. Bætið við hvítvíni og blandið vel saman við hrísgrjónin, lækkið hitann e.t.v. aðeins og eldið á vægum hita.
- Hvítvínið á að gufa alveg upp og þegar grjónin eru aftur þurr, bætið við 1-2 ausum af grænmetissoði og hrærið.
- Við risotto-gerð bætið þið smám saman vökva (grænmetissoði) við grjónin, hrærið saman og bætið við eftir þörfum. Aftur og aftur.
- Grjónin eru tilbúin eftir u.þ.b. 15-20 mínútur.
- Þegar grjónin hafa ennþá smá bit bætið þið saman við þau grænertum, grænkáli og mascarpone osti og blandið vel.
- Bætið síðan út í rifnum parmesan osti og smjörbitum, þeytið vel saman með sleif.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Stillið af þykktina með grænmetissoðinu, risotto á að leka aðeins niður þegar því er skammtað á diska og hafa kremaða áferð.
HÖRPUSKEL
- Steikið hörpuskelina á mjög heitri pönnu í u.þ.b. 2-3 mínútur í ólífuolíu og smjöri.
- Skiptið risotto á 4 diska eða í skálar og raðið hörpuskelinni ofan á ásamt steikarsafanum af pönnunni.
- Dreypið Salsa Verde dressingunni yfir, ásamt dálitlu af salti, pipar og kryddjurtum.
- Berið fram með góðu brauði.
VÍNIN MEÐ
Ítalski uppruni þessa réttar á hvítvín og rauðvín frá Ítalíu.