- Skolið og undirbúið kræklinginn.
- Verið viss um að skeljar séu lokaðar, tínið frá þær sem eru opnar.
- Sjóðið linguini pasta í miklu vatni 1-2 mínútum skemur en segir til á pakkningu.
- Svitið laukinn, hvítlaukinn, chiliflögur og 2 sítrónubáta í ólífuolíu við miðlungshita á góðri pönnu/pönnum.
- Best er að gera þennan rétt í pönnu fyrir hvern og einn en einnig er hægt að skipta uppskriftinni í tvennt og laga í tveimur pönnum.
VÍNIN MEÐ
Bláskel parast sérlega vel með skörpu og frísku hvítvíni s.s. Chablis eða Sancerre.