Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

HUMAR

  1. Kremjið hvítlauk og setjið í olíu, gott er að gera þetta deginum áður.
  2. Pillið humarinn og hreinsið. Veltið honum upp úr hvítlaukolíu.
  3. Hitið grillið vel og grillið humarinn á bakinu í u.þ.b. 3-4 mínútur.
  4. Saltið og penslið með hvítlauksolíu.

 

HVÍTLAUKS-KÓRÍANDER-SÓSA

  1. Kremjið hvítlaukinn, saxið kóríander og blandið saman í skál ásamt límónusafa.
  2. Bætið majónesi og sýrðum rjóma saman við.
  3. Hrærið allt saman og smakkið til með salti og pipar.

 

DÖÐLUR
Skerið í strimla

 

SULTAÐUR RAUÐLAUKUR

  1. Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og setjið í ílát ásamt flórsykri og safa úr sítrónum.
  2. Lokið ílátinu og látið liggja yfir nótt.

 

VÍNIN MEÐ
Með þessum rétti kjósum við að bera fram freyðivín, en vilji maður lúxus þá er kampavín það rétta.  Við veljum einkum ósæt vín, ef þið viljið smá sætu, þá er það ekki bannað. Örlítið sætkryddaður humarinn kallar einnig á hvítvín með mjúkan og sætkenndan ávöxt, t.d. Sauvignon Blanc frá Nýja Sjálandi eða bandarískan Chardonnay.