- Skerið allt grænmetið niður, setjið í pott og steikið við vægan hita.
- Setjið þá bláskelina út í pottinn, ásamt hvítvíni.
- Sjóðið í 4-5 mínútur með lok á pottinum.
- Hellið humarsoði út í pottinn og sjóðið niður um helming.
- Setjið þá rjóma og kókosmjólk saman við og sjóðið aftur niður.
- Sigtið svo súpuna og bætið smjöri og sítrónusafa saman við. Smakkið til með salti og pipar.
- Leggið grillpinna í bleyti, þræðið tígrisrækjurnar upp á pinnana og grillið í u.þ.b. 1 1/2 mínútu á hvorri hlið.
- Kryddið með dálitlu salti.
VÍNIN MEÐ
Freyðivín eru snilld með skelfisksúpu, freyðandi vínið eykur ánægjuna af að borða súpuna og gerir upplifunina af máltíðinni skemmtilega og eftirminnilega. Vínin á þessum lista eru ósæt nema eitt sem er millisætt. Það er smekksatriði hvort maður vill sætu eða ekki.