BLEIKJA
- Blandið sykri og salti saman ásamt rifnum limeberkinum.
- Þekjið bleikjuna með blöndunni og látið liggja í 12 mínútur.
- Skolið bleikjuna svo vel og þerrið vel á eftir.
- Bræðið smjör þangað til að karamelluáferð er komin á það.
- Penslið bleikjuna með smjörinu og setjið inn í ofn á 90°C í 5 mínútur.
SELLERÍRÓTARMAUK
- Afhýðið sellerírótina og skerið í fína kubba.
- Setjið sellerírótina í pott ásamt mjólkinni og smjörinu.
- Hitið rólega upp að suðu og sjóðið þangað til sellerírótin er orðin silkimjúk.
- Setjið allt í blandara ásamt rjómaostinum og blandið vel, hér má bæta meiri mjólk og/eða smjöri við til að fá silkimjúka áferð.
- Smakkið til með salti og pipar.
MANGÓSALSA
Afhýðið mangó og skerið í fína teninga. Skiljið kjarnann úr gúrkunni og skerið gúrkuna í fína teninga. Fínsaxið dill og blandið öllu saman ásamt lime safanum.
SAMSETNING
Setjið sellerímaukið á diskinn, leggið bleikjuna ofan á og toppið með mangósalsa.
VÍNIN MEÐ
Rétturinn hentar vel með ósætu rósavíni.