Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

HUMARSALAT

  1. Skelflettið og hreinsið humarinn vel.
  2. Leggið hann á bakka með smjörpappír og kryddið með salti og pipar og eldið í 5-6 mínútur á 140° C í ofni.
  3. Kælið humarinn þvínæst og saxið niður.
  4. Fínsaxið kóríander ásamt jalapeno (takið fræin úr).
  5. Blandið öllu saman með majónesinu í skál, bætið rifnum berki af einu lime saman við og smakkið til með salti og pipar. 


TRUFFLUMAJÓNES
Blandið öllu vel saman í skál. 

 

SUSHI GRJÓN

  1. Mikilvægt er að velja réttu hrísgrjónin og er hægt að kaupa sushi hrísgrjón í nánast hvaða matvöruverslun sem er.
  2. Skolun á grjónunum er mjög mikilvægt verkferli og felst það í að þrífa grjónin án þess að brjóta þau.
  3. Setjið grjónin í djúpt ílát og látið það undir kalt kranavatn þar til vatnið nær vel yfir grjónin.
  4. Hrærið varlega í grjónunum með höndunum þar til vatnið helst alveg tært.


Sjóðið hrísgrjónin í hrísgrjónapotti í 45 mínútur, leifið þeim að hvíla í pottinum í 20 mínútur og takið þau svo varlega úr með sleikju og setjið í viðardall (hægt er að nota plast líka).

 

SAMSETNING

  1. Hellið 7 dl af edikinu yfir hrísgrjónin og blandið varlega saman.
  2. Dreifið hrísgrjónum á noriblað sem er skorið í helming.
  3. Snúið blaðinu við svo grjónin snúi niður á skurðabrettið og leggið þunnt skorið avókadó eftir endilöngu noriblaðinu.
  4. Dreifið humarsalatinu þar yfir. Rúllið varlega upp með makimottu. 
  5. Skerið í 8 jafna bita.
  6. Raðið rúllunni að vild á disk.
  7. Setjið trufflumajónes yfir og skreytið með rauðu masagoi.

 

VÍNIN MEÐ
Rétturinn hentar vel með ósætu rósavíni.