ÞORSKHNAKKAR
- Lakkríssalti stráð yfir þorskinn og kælt í 1 klst.
- Hnakkarnir útvatnaðir og þerraðir.
- Lakkrís settur í pott og vatni bætt við svo fljóti yfir, bræddur og látinn kólna.
- Hnakkarnir skornir í 200 g steikur og hjúpaðir með lakkríssósunni.
- Olía sett á vel heita pönnu um leið og fiskurinn ásamt smjörklípu.
- Fiskurinn steiktur í um 1 mín. á hvorri hlið og svo bakaður í ofni við 180°C í um 2 mín.
SÆTKARTÖFLUMÚS
- Sætkartaflan bökuð í ofni á 180°C í um 45 mín og svo afhýdd.
- Rjómi hitaður að suðu, kartöflunni bætt út í ásamt smjöri, salti, pipar og appelsínusafa.
- Allt stappað vel saman eða sett í blandara.
WHITE ALE SMJÖRSÓSA
- Rjóminn soðinn niður uns hann þykknar eða um ¾.
- White ale, sveppakrafti, appelsínuberki og safa bætt í.
- Látið sjóða þar til þykknar á ný.
- Mjúkt smjörið pískað saman við í smáum skömmtum.
ANANASSALSA
Ananas skorinn í litla teninga, sriracha og ananassafa hrært saman við ásamt spínati.
VÍNIN MEÐ
Hveitibjórar eru oft með afgerandi sítrustónum í bland við aðra ávaxtatóna eða krydd og henta því vel með þessum rétti. Léttastur er hinn belgíski „witbier“, en meiri kraftur í þýskum „weizenbier“. Fyrir þá sem velja léttvín frekar þarf sætuvott í vínunum til að góð pörun takist.