Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

HÆGELDAÐUR GRÍS

  1. Öllu blandað saman og kjötið látið liggja í pæklinum í 2 sólarhringa.
  2. Elda þarf bóginn að því loknu í hægsuðupotti í 12 klst. á lægstu stillingu.
  3. Heitur grísinn rifinn niður og BBQ sósu hrært saman við. 

Einnig má kaupa hægeldað svínakjöt (e. pulled pork) í flestum matvörubúðum.

 

SOÐBRAUÐ

  1. Öllu blandað saman í hrærivél.
  2. Deigið látið hefast í um 2 klst.
  3. Um 25 litlar bollur mótaðar, látnar hefast í um 1 klst. og gerðir úr þeim hálfmánar.
  4. Látið hefast aftur í um 1-2 klst.
  5. Þá er deigið gufusoðið í 6-8 mín.

 

SÚRSAÐAR GULRÆTUR

  1. Hvítvínsedik, vatn og sykur sett í pott, náð upp suðu.
  2. Gulrætur afhýddar og skornar í þunnar sneiðar og settar í löginn.

 

CHILIMAJÓ
Chilimajó, súrsaðar gulrætur og kjöt sett í soðbrauð og að lokum er smáræði af söxuðum vorlauk dreift yfir.

 

VÍNIN MEÐ
Í þessum rétti ræður sætan og kryddið í svínakjötinu öllu. Kraftmikið öl er það sem gildir. Belgar, Danir, Bretar og Bandaríkjamenn eiga fína fulltrúa sem eiga vel við. Fínleg og létt vín í rauðu og hvítu passa einnig vel.