Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Blandið saman heilhveiti og haframjöli í matvinnsluvél.
  2. Veltið laxastykkjunum upp úr blöndunni og steikið í smjöri á báðum hliðum.
  3. Færið á eldfast fat og bakið við 180°C í u.þ.b. 10 mínútur.

 

RJÓMABAKAÐAR EPLAKARTÖFLUR

  1. Skerið kartöflur í þunnar sneiðar og saxið eplin.
  2. Setjið í eldfast mót ásamt graslauknum.
  3. Kryddið með salti og pipar.
  4. Bræðið saman rjóma og rjómaost með kryddblöndu og hellið yfir kartöflurnar og eplin.
  5. Bakið við 160°C í 40 mínútur

 

OSTAVÍNBERJASALAT

  1. Skerið vínberin í tvennt og hreinsið steinana úr.
  2. Bætið blaðlauk og papriku saman við.
  3. Skerið Maribo kúmenostinn í bita og blandið öllu saman ásamt kotasælu.

 

VÍNIN MEÐ
Upplagt er hér að að velja vín með ferska sýru, en hér koma rauðvín og hvítvín bæði til greina. Í vöruleitinni er að finna ýmsar hugmyndir en hægt er að sía leitina eftir þínum þörfum.