Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Notið ferskar kryddjurtir, þær bragðast langbest.
  2. Saxið kryddjurtirnar niður og blandið þeim saman við olíuna.
  3. Fitusnyrtið lambafilletið og saltið örlítið. Setjið í skál, hellið  marineringunni yfir og setjið í kæli.
  4. Þarf að marinerast að minnsta kosti yfir nótt og best er að láta kjötið liggja í 1-2 daga.
  5. Takið kjötið úr marineringunni og látið olíuna renna af.
  6. Hitið grillið vel og grillið filletið við mikinn hita fyrst og svo á efri grindinni við vægan hita.
  7. Kryddið með salti og pipar úr kvörn.
  8. Búið til gott salat með fetaosti, svörtum ólífum og kirsuberjatómötum.
  9. Lagið góða ediksósu úr ólífuolíu, smá dijonsinnepi, hvítvínsediki og dálitlu af söxuðum, ferskum   kryddjurtum.
  10. Hellið yfir salatið og berið fram strax með grilluðu kjötinu.

 

VÍNIN MEÐ
Í vöruleitinni er að finna vín sem henta vel með þessum rétti.