Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Skerið túnfiskinn ílangt, 4 cm hæð og breidd.
  2. Túnfiskurinn er léttbrúnaður á öllum hliðum, alls ekki um of.
  3. Sojasósu, Wasabi-dufti og safa úr tveimur sítrónum blandað saman og túnfiskurinn látinn marínerast í leginum í 4-5 klukkustundir.
  4. Túnfiskurinn er skorinn í þunnar sneiðar og raðað á disk.

 

KARRÍ-MAJONES

  1. Eggjarauðu, dálitlu salti og sérrí-ediki blandað saman og léttþeytt með píski.
  2. Olíu og karríi blandað saman og hellt varlega út í eggjarauðublönduna og pískað um leið.
  3. Majonesið er síðan haft með túnfiskinum eftir smekk. Einnig er gott að hafa með þessu klettasalat.

 

VÍNIN MEÐ
Túnfiskurinn biður uppá marga möguleika í vínpörun. Fínlegt rautt, rósavín og ferskt hvítvín