Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í stórri skál.
  2. Blandið palmín feitinni samanvið (gott er að nota til dæmis tvo hnífa til að blanda harðri feitinni við þurrefnin) þar til áferðin líkist grófu mjöli.
  3. Blandið smá mjólk saman við blönduna. Hrærið í með gaffli þar til blandan tollir saman, deigið á ekki að vera klístrað.
  4. Hnoðið deigið með smá hveiti þar til það myndar mjúkan bolta. Látið deigið hvílast í ísskáp í minnst hálftíma en helst yfir nótt. Skiptið deiginu í margar litlar kúlur á stærð við golfkúlur og fletjið þær út í 15 cm hringi.
  5. Setjið matskeið af uppáhaldsfyllingunni ykkar á hverja köku, penslið kantana með vatni og lokið þeim þannig að þær myndi hálfmána. Notið gaffal á barmana til að loka þeim eða þrýstið með fingrunum.
  6. Bakið í ofni eða djúpsteikið þar til bökurnar fá á sig fallegan lit.

 

KJÚKLINGAFYLLING

  1. Setjið kjúklingabringurnar í pott ásamt kjúklingakraftinum og lárviðarlaufinu og bætið vatni í svo það fljóti yfir bringurnar.
  2. Sjóðið á lágum hita í 15-20 mínútur, látið kjúklinginn kólna í soðinu.
  3. Skerið kjúklinginn niður í litla bita og bleitið upp í honum með 1-2 msk. af soðinu.
  4. Hitið olíu á pönnu og bætið á hana lauk, paprikudufti, kúmen, chilidufti, sykri og bragðbætið með salti og pipar eftir smekk.
  5. Steikið á lágum hita í 15-20 mínútur þar til laukurinn er glær.
  6. Takið pönnuna af hitanum og hrærið kjúklingnum, eggjunum og ólífunum saman við.
  7. Fyllingin er best ef hún fær að bíða í ísskáp yfir nótt.

 

NAUTAHAKKSFYLLING

  1. Steikið hakkið á pönnu ásamt lauki og hvítlauki og hellið afgangs fitu frá.
  2. Bætið eggi og rúsínum í blönduna.

 

VÍNIN MEÐ

Létt rauðvín eru hentug með empanada.