BRENNT BLÓMKÁLSMAUK
- Bræðið smjörið í potti.
- Saxið blómkálið og steikið það í smjörinu við vægan hita uns það verður mjúkt og fær gullinn lit.
- Maukið í blandara ásamt rjómanum og smakkið til með ögn af sítrónusafa og salti.
FLAUELSMJÚK BLÓMKÁLSSÚPA
- Saxið blómkálið og setjið það í pott ásamt mjólkinni og rjómanum.
- Sjóðið rólega þar til blómkálið verður mjúkt.
- Maukið í blandara uns blandan verður flauelsmjúk.
- Smakkið til með salti og sítrónusafa.
STEIKT BLÓMKÁL
- Setjið blómkálið í sjóðandi vatn og sjóðið í 2 mínútur.
- Látið renna af því í sigti og þerrið dálítið.
- Steikið varlega í smjörinu og kryddið með salti, pipar og saxaðri skessujurt.
FRAMREIÐSLA
- Setjið eina fulla skeið af brennda maukinu í litla skál, hellið dálítilli súpu yfir og leggið svo varlega steiktan blómkálstopp efst.
- Fallegt er að hella nokkrum dropum af repjuolíu (eða annarri góðri olíu) í hring ofan á, bæði til skrauts og yndisauka.
VÍNIN MEÐ
Talsvert úrval er af vínum með grænmetisréttum sem finna má í vöruleitinni hér á vinbudin.is.