Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

BRENNT BLÓMKÁLSMAUK

  1. Bræðið smjörið í potti.
  2. Saxið blómkálið og steikið það í smjörinu við vægan hita uns það verður mjúkt og fær gullinn lit.
  3. Maukið í blandara ásamt rjómanum og smakkið til með ögn af sítrónusafa og salti.

 

FLAUELSMJÚK BLÓMKÁLSSÚPA

  1. Saxið blómkálið og setjið það í pott ásamt mjólkinni og rjómanum.
  2. Sjóðið rólega þar til blómkálið verður mjúkt.
  3. Maukið í blandara uns blandan verður flauelsmjúk.
  4. Smakkið til með salti og sítrónusafa.

 

STEIKT BLÓMKÁL

  1. Setjið blómkálið í sjóðandi vatn og sjóðið í 2 mínútur.
  2. Látið renna af því í sigti og þerrið dálítið.
  3. Steikið varlega í smjörinu og kryddið með salti, pipar og saxaðri skessujurt.

 

FRAMREIÐSLA

  1. Setjið eina fulla skeið af brennda maukinu í litla skál, hellið dálítilli súpu yfir og leggið svo varlega steiktan blómkálstopp efst.
  2. Fallegt er að hella nokkrum dropum af repjuolíu (eða annarri góðri olíu) í hring ofan á, bæði til skrauts og yndisauka.

 

VÍNIN MEÐ
Talsvert úrval er af vínum með grænmetisréttum sem finna má í vöruleitinni hér á vinbudin.is.