- Blandið saman BBQ-sósu, sojasósu, ólífuolíu, fínt skornum hvítlauk og sesamfræjum í skál.
- Skerið lambalundirnar í bita og hellið marineringunni yfir kjötið.
- Marinerið kjötið í 1 klst. Þræðið kjötið á grillspjót.
- Grillið á rjúkandi heitu grilli í 2 mínútur á hvorri hlið.
- Skerið rauðlaukinn í tvennt og grillið hann líka í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
VÍNIN MEÐ
Þessi réttur kallar á rauðvín í sætari kantinum gjarnan með sætuvotti í lýsingu. Einnig mætti vera með rósavín sem hafa einnig sætuvott.