- Setjið allt nema lambalærið í blandara og maukið vel saman.
- Hellið marineringunni yfir lærið og marinerið í 2-5 daga. Því lengur, því betra.
- Takið lærið úr marineringunni og strjúkið sem mest af vökvanum af því.
- Vefjið lærið í álpappír, grillið á miðlungsheitu grilli í 30 mínútur og snúið því reglulega.
- Takið álpappírinn af og grillið lærið áfram í 10 mínútur. Leyfið kjötinu að hvíla vel í a.m.k. 10 mínútur áður en það er skorið.
MEÐLÆTI
- Vefjið kartöflunum inn í álpappír og bakið þær á grillinu með lambinu.
- Takið kartöflurnar úr álpappírnum, skerið í þær og setjið sýrðan rjóma ofan á.
- Raspið sítrónubörk yfir og sáldrið fínt söxuðum graslauk efst.
VÍN SEM HENTAR
Lambalæri sem er marinerað á þennan hátt kallar á bragðmikil frönsk rauðvín frá Bordaux. Einnig ítölsk Ripasso vín eða góð spænsk Rioja vín.