- Best er að nota stóran pott miðað við magn sem á að elda og hafa allt hráefni tilbúið við höndina, þar sem eldunin tekur mjög stuttan tíma.
- Vorlaukurinn er skorinn fínt meðan potturinn hitnar.
- Bláskel, smjör og vorlaukur sett í vel heitan pottinn, víninu bætt út í og pottinum lokað strax (mikilvægt að nota lok og hafa hraðar hendur) og soðið í 1 mínútu.
- Að lokum er ostasoðinu bætt við og allt soðið þar til allar skeljar hafa opnast, mikilvægt er að gæta þess að sjóða ekki of lengi.
- Best er að bera skelina fram í pottinum sem hún er elduð í og kartöflur í skál til hliðar.
VÍNIN MEÐ
Með þessum rétti hentar ferskur Sauvignon Blanc vel. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Einnig getur spænskur Albariño hentað vel.