ÁTVR starfar með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi og vinnur gegn skaðlegri notkun áfengis og tóbaks.
Ásamt því að vinna beint að forvarnarstarfi hefur ÁTVR lagt metnað sinn í að starfa með þeim aðilum sem vinna að forvörnum. Einnig hefur fyrirtækið tekið þátt í að styrkja hin ýmsu mannúðar- og forvarnarmál sem tengjast neyslu vímuefna og fyrirbyggjandi starfsemi.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um helstu herferðir sem ÁTVR hefur staðið fyrir, bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra.
Hér er hægt að nálgast myndböndin á Vimeo.