Ljós lager er vinsælasti flokkur bjórs í dag og á rætur sínar að rekja til borgarinnar Pilsen í Tékklandi. Þetta eru undirgerjaðir bjórar og eru eins og nafnið gefur til kynna ljósir eða gullinn á lit og flestar tegundir bragðmildar, þó með undantekningum. Algengast er að vínandastyrkur sé á bilinu 4,5% - 5,6% en þó eru til tegundir sem hafa minni styrkleika eða meiri. Ljósir lager bjórar eiga að vera ferskir og brakandi og bragð einkennist af korninu sem notað er við framleiðslu bjórsins, nokkuð mikilli freyðingu, og fremur lítilli til miðlungs beiskju. Humlar eru notaðir sem mótvægi við sætuna í maltvökvanum.
Ljós lager – Keimur, mýkt, styrkleiki og beiskja

Undirflokkar

Pilsner

Þessir bjórar hafa sætkenndan maltkarakter, stundum með vott af smjörkaramellutónum og þónokkra beiskju frá humlum sem notast er við, en þó ekki afgerandi. Þýskir Pilsnerar eru léttari og ekki eins beiskir og þeir tékknesku.
Pilsner – Keimur, mýkt, styrkleiki og beiskja

Vörur í þessum flokki