Í tilefni 100 ára afmælis ÁTVR verða gefnir margnota pokar í Vínbúðum næstu daga. Pokarnir verða í boði á meðan birgðir endast, en um er að ræða poka sem hægt er að brjóta saman í vasa svo það fer lítið fyrir þeim og þægilegt að hafa þá með sér.
ÁTVR var fyrst stofnað árið 1922 og hefur fyrirtækið dafnað vel á þessum 100 árum sem það hefur verið starfandi. Áður var lítið vöruúrval í boði og afgreitt yfir borð, en nú eru Vínbúðirnar margverðlaunað þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á faglega og góða þjónustu og gott vöruúrval.
Við óskum viðskiptavinum og starfsfólki til hamingju með stórafmælið!