Samþykkt voru í morgun á Alþingi lög um ráðstafanir í skattamálum sem taka meðal annars til hækkana á áfengis- og tóbaksgjalda.
Í lögunum er gert ráð fyrir 10% hækkun á áfengisgjaldi sem tekur gildi um áramót. Áætluð áhrif á smásöluverð eru nokkuð mismunandi eftir tegundum þar sem áfengisgjald er reiknað út frá áfengisprósentu.
Meðfylgjandi tafla sýnir dæmi um breytingar á nokkrum tegundum. Eins og sjá má gætir áhrifa breytinganna mest á sterku áfengi.
Í útreikningum er gert ráð fyrir breytingu á virðisaukaskatti og áfengisgjöldum en óbreyttu aðfangaverði frá birgjum.