Viðskiptavinir bíða margir spenntir eftir jólabjórnum, en mikið hefur verið spurt um það hvenær hann berst í Vínbúðir. Um sextán jólabjórar munu verða til sölu um þessi jól, en sala þeirra mun hefjast, þriðja fimmtudag í nóvember, eða þann 19.nóvember næstkomandi.
Einhverjar nýjar tegundir bætast í hóp jólabjóranna í ár, en að öðru leyti ættu viðskiptavinir að þekkja flestar tegundir frá fyrri árum.