Sala áfengis í október var 15,3% minni í lítrum talið en í október árið 2008. Meginástæðu fyrir þessum mikla mun má rekja til þess að 31. október í fyrra kom mikill fjöldi viðskiptavina í Vínbúðirnar í kjölfar frétta í fjölmiðlum um yfirvofandi hækkun á áfengisgjaldi. Þann dag komu tæplega 44 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar en á hefðbundnum föstudegi koma að meðaltali um 29 þús. viðskiptavinir.
Sala áfengis í lítrum tímabilið janúar til október dróst saman um 1,6%. Það sem af er árinu hefur sala á rauðvíni dregist saman um 16,6%, blönduðum drykkjum um 37% og ókrydduðu brennivíni og vodka um 10,5%. Sala á hvítvíni jókst hins vegar á milli ára um 3,4% og sala lagerbjórs jókst um 0,1%.
