Vínbúðin Grundarfirði hefur nú fengið andlitslyftingu þar sem skipt var um innréttingar og hillupláss aukið ásamt því að allar merkingar voru endurnýjaðar.
Verið velkomin í enn betri Vínbúð!
Vínbúðin er stolt af því að vera leiðandi fyrirtæki í umhverfisábyrgð og leggur áherslu á að bjóða gott úrval af fjölnota innkaupapokum.
Við gerð ársskýrslu ÁTVR er fylgt viðmiðum GRI, þar sem upplýsingum tengdum samfélagslegri ábyrgð er miðlað á gagnsæjan hátt.