Allar Vínbúðir eru opnar samkvæmt venju, en við bendum viðskiptavinum á að forðast annatíma eins og hægt er og nota skynsemina í samskiptum við starfsfólk og aðra viðskiptavini. Við bendum á nokkur góð ráð til að forðast mögulegar smitleiðir:
- Forðumst annatíma
Það er rólegra hjá okkur fyrri hluta dags og í upphafi vikunnar
- Virðum 2. metra regluna
Reynum eftir besta megni að vera ekki nær viðskiptavinum eða starfsfólki þar sem því verður við komið.
- Handleikum ekki að óþörfu
Forðumst að snerta þær vörur sem við erum ekki að kaupa.
- Notum rafrænar greiðslur
Minnkum notkun peninga í umferð eins og hægt er og nýtum frekar rafrænar greiðslur eða kort.
- Við takmörkum fjölda
Við takmörkum fjölda viðskiptavina á hverjum tíma.
Með því að standa saman minnkar áhættan bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk í baráttunni við útbreiðslu á COVID-19.