ÁTVR gefur listamönnum sem þess óska tækifæri til að sýna verk sín í vínbúðum fyrirtækisins (sjá nánar).
Listamaðurinn Garðar Jökulsson sýnir nú verk sín í Vínbúðinni Dalvegi og er sýningin sú fyrsta eftir að reglur um sýningu listaverka í vínbúðum tóku gildi.
Hægt er að festa kaup á verkum Garðars, en starfsmenn vínbúðarinnar veita frekari upplýsingar.