Vegna uppfærslu á vefnum verður ekki hægt að versla í Vefbúðinni á milli kl. 22 og 23 í kvöld. Við biðjumst velvirðingar á trufluninni.
Í Vefbúðinni hér á vinbudin.is er mikið úrval vörutegunda í boði, en hægt er að velja á milli þess að sækja samdægurs í vöruafgreiðslu á Stuðlahálsi eða fá sent í hvaða Vínbúð sem er – án endurgjalds. Sendingartími er um 1-3 dagar á höfuðborgarsvæðinu, en allt að 7 dagar í aðrar Vínbúðir. Við látum þig vita þegar varan er komin i búðina.
Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að er einnig auðvelt að sérpanta þær vörur sem ekki eru til í hillum Vínbúðanna. Vörur sem þarf að sérpanta eru merktar sérstaklega. Í sumum tilfellum er hægt að kaupa vöruna beint í Vefbúðinni, en annars er send fyrirspurn um hvort varan sé fáanleg hverju sinni.