Sala á þorrabjór hefst fimmtudaginn 24. janúar en upphaf þorrans er á Bóndadaginn, föstudaginn 25. janúar.
Í ár er áætlað að 14 tegundir af þorrabjór verði í boði, en þegar sala hefst verður hægt að skoða nánar hér á vinbudin.is í hvaða Vínbúð hver tegund fæst og einnig er hægt að kaupa þá beint í Vefbúðinni. Sölutímabili þorrabjórs lýkur 23.febrúar.
Eftirfarandi tegundir eru áætlaðar í sölu:
- Þorrakaldi 330 ml 5%
- Víking Juniper Bock 330 ml 6,2%
- Hvalur 2 þorraöl Steðja 330 ml 5,1%
- Surtur Nr.8.2 330 ml 14,5%
- Surtur Nr.61 330 ml 13%
- Bóndi 500 ml 4,6%
- Red Hot Chili Porter 330 ml 4,8%
- Surtur Nr.8.9 330 ml 13%
- Víking Þorri 330 ml 4,8%
- Surtur gjafaaskja 990 ml 13%
- Ölvisholt Þorrabjór 330 ml 5%
- Segull 67 Þorraöl 330 ml 5,6%
- Þorragull 330 ml 6%
- TBB 23.1.1973 Dark Ale 330 ml 6,5%
Sjá lista yfir þorrabjórinn