Páskabjórinn hefur verið fastur liður í vöruvali hjá Vínbúðunum undanfarin ár líkt og jólabjór, þorrabjór og aðrar árstíðarbundnar vörur sem seldar eru í skamman tíma. Sölutímabil páskabjórsins þetta árið er 22.febrúar til 31.mars
Pásakbjórarnir í ár eru:
• Víking Páskabjór
• Páskakaldi
• Páskagull Hefeweizen
• Föroya Páska Bryggj
• Víking Páska Bock
• Segull 67 Hérastubbur páskabjór
• Harboe Påskebryg
• Steðji Páskaöl
• Páskapúki
• Barabbas Nr. 57
• Sabbat Páskabjór
• Þumall
Eins og áður er úr nokkuð skemmtilegu úrvali páskabjóra að velja þetta árið og einhverjar nýjungar þar á meðal fyrir þá sem hafa gaman af því að smakka eitthvað nýtt. Í vöruleitinni er hægt að finna allt það úrval af páskabjór sem til er á hverjum tíma og í hvaða Vínbúðum þeir fást.