Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Salan um verslunarmannahelgina

18.08.2006

Salan um verslunarmannahelginaUm 109 þúsund viðskiptavinir komu í vínbúðirnar í vikunni fyrir verslunarmannahelgina (vika 31), eða um 3% fleiri en í sömu viku árið 2005. Föstudagurinn um verslunarmannahelgina (4.ágúst í ár) er einn stærsti dagur ársins í vínbúðunum í sölu. Í ár komu um 37 þúsund manns í vínbúðirnar á föstudeginum. Vikan fyrir verslunarmannahelgina er ein stærsta söluvika ársins og er salan að jafnaði 50% meiri en aðrar vikur í júlí (sem er næst söluhæsti mánuður ársins). Að jafnaði koma um 300 þúsund viðskiptavinir í vínbúðirnar í hverjum mánuði sem gera meira en 3,5 milljónir viðskiptavina á ári.