Ný Vínbúð hefur nú opnað í Kauptúni, Garðabæ, en Vínbúðin er staðsett á milli Costco og Bónus.
Viðskiptavinir virðast ánægðir með uppröðun léttvína í búðinni sem er með nokkuð óhefðbundnu sniði og hafa þónokkrir lýst yfir ánægju sína með þessa nýjung. Í stað þess að raða eftir löndum eins og í öðrum Vínbúðum er léttvínum raðað eftir bragðeiginleikum sem gerir viðskiptavinum auðvelt að finna rétta vínið. Þannig er vínunum skipað í flokka eftir bragði og sætleika og með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat vínið hentar. Allur bjór er í kæli eins og nú er í flestum stærri Vínbúðum.
Við bjóðum Garðbæinga sem og aðra viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega búð.