Á fundi bæjarráðs Garðabæjar nú í morgun var samþykkt að opna Vínbúð í Kauptúni. Vínbúðin mun því opna fimmtudaginn 23. nóvember kl. 11.00.
Í Vínbúðinni Garðabæ er uppröðun með nokkuð óhefðbundnu sniði. Í stað þess að raða eftir löndum eins og í öðrum Vínbúðum verður léttvínum raðað eftir bragðeiginleikum sem gerir viðskiptavinum auðvelt að finna rétta vínið. Þannig er vínunum skipað í flokka eftir bragði og sætleika og með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat vínið hentar.
Við bjóðum Garðbæinga sem og aðra viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega búð.