Við hækkum verð á plastpokunum okkar um 10 kr. sem renna óskiptar í Pokasjóð.
Frá og með 1. september mun plastpokinn kosta 30 kr.
Vínbúðin er stolt af því að vera leiðandi fyrirtæki í umhverfisábyrgð og leggur áherslu á að bjóða gott úrval af fjölnota innkaupapokum.
Við gerð ársskýrslu ÁTVR er fylgt viðmiðum GRI, þar sem upplýsingum tengdum samfélagslegri ábyrgð er miðlað á gagnsæjan hátt.