Frá árinu 2015 hafa áfengiseinkasölurnar á Norðurlöndum unnið að því að greina umhverfisáhrif vörusafnsins. Danska fyrirtækið 2.-0 LCA consultants vann verkið og byggði vinnuna á gagnagrunninum EXIOBASE 3.3.5, sem er nýjasti og fullbúnasti gagnabanki sem til er yfir hnattræn umhverfisáhrif af völdum framleiðslu, og áhrifamats-aðferðarinnar Stepwise2006 sem gerir kleift að umbreyta öllum umhverfisáhrifum í mynteiningar.
Niðurstaðan
Myndin hér fyrir neðan sýnir að tvö umhverfisatriði valda 86% af heildaráhrifum vegna framleiðslu og neyslu á víni, bjór og öðrum áfengum drykkjum:
- Áhrif á öndunarfæri (vegna innöndunar á menguðu lofti)
- Hnattræn hlýnun (vegna gróðurhúsalofttegunda, veldur einkum fækkun tegunda)
Öll önnur umhverfisáhrif falla í skuggann af þessum tveimur áhrifum. Umrædd áhrif eru aðallega af völdum brennslu eldsneytis til orkuframleiðslu.

Helstu leiðir til úrbóta
Umbúðir um vöruna skilja eftir stærsta sótsporið og vegur þar glerið mest. Glerflöskur eru þungar og framleiðsla á þeim þarfnast mun meiri orku en framleiðsla umbúða úr pappír, plasti eða áli. Skoða skal val á efni sem notað er (PET, ál, drykkjakassi, gler, poki í kassa) og þyngd einstakra umbúða.
Áhersla á stýringu eldsneytisnotkunar og losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði.
Í orkunotkun eru frávík sem benda til möguleika á úrbótum. Einnig er áhugavert að skoða hvort hægt sé að auka landbúnaðarafrakstur án þess að skerða gæði.
Niðurstöður rannsóknarinnar munu hafa áhrif á stefnu í umhverfismálum hjá ÁTVR næstu árin og byggir sú vinna mikið á samtali við aðila í virðiskeðjunni, frá framleiðendum til viðskiptavina.
Skýrslan í heild sinni, ásamt nákvæmum lýsingum á gögnum og aðferðum, er aðgengileg öllum hér og er á ensku. Einnig er stutt samantekt á íslensku og ensku.

Efni þessarar fréttar tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, m.a. um ábyrga neyslu, verndun jarðarinnar og líf undir vatni.