Plastprent og Ríkiskaup undirrituðu á dögunum samkomulag um kaup á burðarpokum fyrir Vínbúðir ÁTVR. Um er að ræða 6 milljónir burðarpoka á næstu tveimur árum. Plastprent bauð lægst í útboði Ríkiskaupa og er einkum ánægjulegt að öll framleiðsla plastpokanna fer fram hérlendis.
Samninginn undirrituðu Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR og Sigurður Þorvaldsson, sölustjóri Plastprents.