Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá Fjármálaráðuneytinu:
Fjármálaráðherra hefur gert tvenns konar breytingar á reglugerð um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og tekur hún gildi nú þegar. Annars vegar er ákvæðum reglugerðarinnar um álagningu stofnunarinnar á áfengi og tóbaki breytt til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 63/1969, um verslun með áfengi og tóbak, á síðastliðnu haustþingi. Hins vegar eru gerðar breytingar á ákvæðum um stjórn Áfengis- og tóbaksverslunarinnar þannig að stjórnarmönnum er fjölgað úr þremur í fimm og stjórnin er skipuð til ársloka 2009.
Fjármálaráðherra hefur skipað eftirtalda einstaklinga í stjórn Áfengis- og tóbaksverslunarinnar.
Aðalmenn:
• Aðalheiður Héðinsdóttir, formaður
• Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaformaður
• Eyjólfur Eysteinsson
• Sigurður M. Magnússon
• Maríanna Jónasdóttir
Varamenn:
• Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
• Helga A. Erlingsdóttir
• Bryndís Friðgeirsdóttir
• Dögg Pálsdóttir
• Þórður Reynisson
Enn fremur hefur fjármálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp sem hefur það hlutverk að gera heildstæða úttekt á áfengislöggjöfinni. Meðal verkefna starfshópsins er að leggja mat á lagaumhverfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, áfengisauglýsingar og markaðssetningu áfengis. Starfshópurinn mun verða undir forystu fjármálaráðuneytisins en í starfshópnum eiga einnig sæti fulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins. Miðað er við að starfshópurinn skili tillögum sínum til fjármálaráðherra fyrir lok september næstkomandi.
Reykjavík 19. mars 2009