Nú standa yfir spennandi framkvæmdir í vínbúðinni Skeifunni þar sem kælirinn er stækkaður til muna. Í framhaldi verður hægt að koma öllum bjór Vínbúðarinnar fyrir í kælinum og koma þannig til móts við óskir viðskiptavina.
Starfsfólk Vínbúðarinnar hefur ekki látið sitt eftir liggja í breytingunum og allir lagst á eitt svo framkvæmdirnar gangi hratt og snurðulaust fyrir sig. Að sögn verslunarstjóra hafa viðskiptavinir sem lagt hafa leið sína í Skeifuna sýnt mikla þolinmæði og margir hafa tjáð ánægju sína með breytinguna.