Vínbúðin Akranesi var opnuð 17. febrúar eftir gagngerar endurbætur. Lagfæringar og breytingar voru gerðar á öllu húsnæðinu auk þess sem ný kassaborð voru sett upp. Viðskiptavinir voru mjög jákvæðir meðan á framkvæmdum stóð þrátt fyrir mikið rask og er mikil ánægja með breytinguna. Búðin er nú sérlega björt og falleg auk þess sem öll vinnuaðstaða hefur verið bætt til muna.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna í breytta og bætta Vínbúð á Akranesi!